26. júlí 2011

Hausar taldir í TMM

Við Druslubókadömur höfum bæði áhuga á bókmenntum og jafnrétti.

Þessvegna finnst okkur oft afar fróðlegt að skoða kynjahlutföllin í bókmenntum og bókmenntaumræðu á Íslandi. Og þá liggur yfirleitt beinast við að leggjast í hausatalningar.

Ég skoðaði efnisyfirlit síðasta heftis af Tímariti Máls og menningar (72. árgangur, 2. hefti, maí 2011). Það lítur svona út:

Höfundar: 20

Karlar: 15 (75%)
Konur: 5 (25%)

Og þess má geta að tvær konur eru meðhöfundar einnar ádrepu (sem svo skemmtilega vill til að fjallar einmitt um hausatalningar í bókmenntaþætti).

Greinarnar í blaðinu eru því 19 talsins, og konur því einungis höfundar 21% efnis.

5 ummæli:

Þórdís Gísladóttir sagði...

Ég er óvart með TMM 4. hefti 2010 við hliðina á mér, þar eru 15 karlar efnishöfundar og 3 konur.

Nafnlaus sagði...

TMM 1. hefti 2011: 14 karlar og 3 konur skrifa í tímaritið.

Nafnlaus sagði...

Djöfull skrifa konur lítið.

Hildur Knútsdóttir sagði...

Ég veit um fullt af konum sem skrifa mikið.

Eva Hauksdóttir sagði...

http://www.norn.is/sapuopera/2011/07/af_hverju_eru_konur_svona_ovin.html