Druslubókadömur halda ekki aðeins úti bókabloggi, þær hittast stundum í raunheimnum og skömmu fyrir jól var skellt í jólaglögg. Allar áttu að mæta með eina innpakkaða hallærislúðasnilldarskringibók og síðan var skiptst á gjöfum. Ákveðið var að hver ætti svo að blogga um sína gjöf en eitthvað hefur verið lítið um efndir, ég ætla því að brjóta ísinn og ríða á vaðið.Ég fékk undurfagra bók, gefna út í Svíþjóð, eftir Björn Ranelid sem ég hafði aldrei heyrt um og ákvað því að byrja á því að kynna mér manninn. Í fyrsta lagi kom í ljós að við eigum sama afmælisdag, Björn Ranelid er nákvæmlega 20 árum eldri en ég. Þetta getur varla verið tilviljun. Í ljós kemur einnig að Ranelid þótti efnilegur knattspyrnumaður á sínum yngri árum en ákvað frekar að gerast gríðarlega afkastamikill á ritvellinum, hann hefur sent frá sér 20 skáldsögur síðan hann byrjaði að skrifa árið 1983 og skrifað mörg hunduð blaðagreinar og er samkvæmt heimildum mikið fyrir að halda ræður við ýmis tilefni. Eitthvað virðist vera varið í skáldskapinn, hann hefur að minnsta kosti fengið ýmsar viðurkenningar á þeim vettvangi, meðal annars August priset fyrir skáldsöguna Synden árið 1994.
En í umfjöllunum um hann er líka iðulega tekið fram að hann sé býsna umdeildur. Hann er afar kristinn og víst fullur efasemda þegar kemur að þróunarkenningunni. Hann þykir líka hafa mjög svo sérstakan og afgerandi stíl í skrifum sínum, talað er um “det ranelidska språket”, þ.e. að hann hafi í raun búið til sitt eigið tungumál. Sjálfur virðist hann vera meðvitaður um þetta og lýsir eigin tungumáli einhvern veginn á þá leið að það sé afar ljóðrænt og hlaðið myndhverfingum, ég er engu nær og þið eflaust ekki heldur enda gæti lýsingin átt við meiri hluta skáldskapar, svona almennt séð. En sumsé, stíllinn er víst auðþekkjanlegur.

