Það gengur á með hátíðum. Nú á fimmtudagskvöldið byrjaði kvikmyndahátíðin RIFF og næstu vikuna verður áfram gósentíð en jafnframt krónískur valkvíði hjá kvikmyndaáhugafólki. Þeim sem hafa áhuga á bæði bókum og bíó má benda á að nokkrar myndir á hátíðinni tengjast bókmenntum eða bókum. Faust, kvikmynd Alexanders Sokurovs, er t.d. sprottin af samnefndu verki Goethes en samkvæmt kynningu í prógrammi er kvikmyndin þó „ekki aðlögun á harmleik Goethes í hefðbundnum skilningi, heldur túlkun á því sem má lesa milli línanna“. We Need to Talk About Kevin er byggð á samnefndri skáldsögu. Í pistli hér á síðunni fyrir allnokkru mælti Æsa alls ekki með því að fólk bókina, m.a. því hún gæti valdið andvökum með óbærilegum hugsunum um vonsku heimsins. Ég hef heyrt vel látið af myndinni en jafnframt hefur fylgt sögunni að hún henti ekki viðkvæmum. Önnur skáldsögukvikmynd sem sjá má á RIFF er ný mynd Andreu Arnold eftir Wuthering Heights, sögu Emily Brontë. Á dagskrá hátíðarinnar er síðan líka bókamynd af allt öðru tagi: Að búa til bók með Steidl sem snýst um bækur en ekki bókmenntir því þetta er heimildamynd um bókaútgefandann Gerhard Steidl og útgáfu hans á ljósmyndabókum. (Ef lesendur vita um fleiri kvikmyndir á RIFF sem tengjast bókum á einhvern hátt má gjarnan láta vita í kommentakerfinu.)
Ég er búin að sjá tvær síðastnefndu myndirnar,