 |
Ritstýrur sitja fyrir svörum: Charlotte Myrbråten frá Fett,
Anneli Carnelid frá Bang og Sara Eriksson frá Astra |
Orðið bókamessa fannst mér hálfskrítið þegar ég heyrði það fyrst, vekjandi tengsl við einhverskonar tilbeiðslu eða helgisiði ‒ en ef að einhversstaðar eru aðstæður til tilbeiðslu á bókmenntum þá er það auðvitað einmitt á bókamessunum. Þær eru ekki bara gríðarstórir bókamarkaðir heldur einnig vettvangur allskonar pallborðsumræðna og viðtala og upplestra rithöfunda, útgefenda og annarra úr faginu. Bókaforlög og allskonar bókmenntatengd batterí og hagsmunasamtök eru með bása og ekki verra að oft er tækifærið notað til að setja upp matarmessu í sama húsnæði, svo þegar messugestir eru orðnir svangir og þreyttir í eyrum og athyglisgáfu má rölta yfir á matarsvæðið og smakka í nokkrum vel völdum básum.
Í ár var ég svo heppin að vera boðið á þýðendaseminar á bókamessunni í Gautaborg, sem er sú stærsta á Norðurlöndum. Þar var ýmislegt í gangi, yfirþyrmandi margt reyndar. Allt sem ég missti af væri út af fyrir sig upptalningarefni í minnst eina færslu (það sem kemur helst upp í hugann og mér fannst hljóma virkilega áhugavert var Gunilla Bergström, höfundur Einars Áskels, með erindið
Hvem er pappa Åberg?)