Sýnir færslur með efnisorðinu Raymond Chandler. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Raymond Chandler. Sýna allar færslur

23. september 2011

Mælt með fornum reyfara: Double Indemnity e. James M. Cain

Svo ég hefji nú þennan pistil á að endurtaka mig úr þeim síðasta, þá les ég lítið af glæpasögum og þær sem ég hef (ansi handahófskennt) lesið undanfarin ár hafa mér í besta falli fundist ágætis afþreying. Um daginn rakst ég þó á eina sem mér finnst vert að mæla með: Double Indemnity eftir James M. Cain.