Sýnir færslur með efnisorðinu Verndarenglar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Verndarenglar. Sýna allar færslur

11. maí 2013

Hið háskalega líf á Norðurlöndunum

Hin knáa Kristina Ohlsson
Norræna glæpasagan virðist ekki á neinu undanhaldi eftir vinsældir síðustu ára. Íslenskur bókamarkaður hefur ekki farið varhluta af glæpaöldunni og hlutfall krimma af þýddum bókum er afar hátt. Af 70 þýddum bókum í Bókatíðindum 2012 taldist mér til að a.m.k. 28 væru glæpa-/spennusögur, sem jafngildir 40%. Nú les ég sjálf mikið af glæpasögum og er áhugakona um glæpasagnaformið, en þegar útgáfa á einni bókmenntagrein verður ráðandi er hætt við að það sé á kostnað annars konar bókmennta. Tískustraumar eru alltaf dálítið varhugaverðir, sagði áhyggjufulli marxistabloggarinn og hleypti brúnum.

En nóg um það, ég hef nýlokið við tvær skandinavískar glæpasögur eftir höfunda sem hljóta að flokkast með þeim betri í þeim bransa og reyndust báðar bækurnar hin fínasta lesning. Fyrsta skal telja hina sænsku Verndarengla eftir Kristinu Ohlsson, en Kristina er fædd 1979 (ég stressast alltaf upp og fyllist minnimáttarkennd þegar ég les bækur eftir fólk á aldur við mig sem er búið að skrifa fullt af bókum), stjórnmálafræðingur og vann áður í einhvers slags hryðjuverkadeild hjá ÖSE. Nýlega kom út í Svíþjóð fimmta bókin í glæpaseríu hennar um Frediku Bergman, Alex Recht, Peder Rydh og félaga í Stokkhólmslögreglunni, en Verndarenglar er sú þriðja og kom út hjá Forlaginu á þessu ári. Áður höfðu komið út á íslensku Utangarðsbörn og Baldursbrár sem fjalla um þetta sama lögreglufólk. Hver bók er sjálfstæð og segir frá afmörkuðu glæpamáli en einkalíf Fredriku, Alex og Peder fléttast líka inn í söguþráðinn og því mæli ég með því að bækurnar séu lesnar í réttri röð.