Fifty Shades of Grey eftir E.L. James og framhaldsbækurnar Fifty Shades Darker og Fifty Shades Freed raða sér í efstu sæti ýmissa metsölulista um þessar mundir. Þetta hefur vakið athygli af ýmsum ástæðum en einkum þeirri að trílógían flokkast til erótískra bóka sem hafa talist jaðargrein til þessa, og ýmsir hafa íhugað ástæðurnar fyrir því að þær hafa náð almennum vinsældum. Í því samhengi er rafbókavæðing oftast nefnt til sögunnar og sú staðreynd að auðvelt er að láta lítið bera á bæði kaupum og lestri rafbóka. Einnig er sérlega fljótlegt að kaupa rafbækur, þegar forvitni vaknar þarf ekki marga smelli þangað til bókin er tiltæk til lestrar.
Netið leikur þó ennþá stærra hlutverk í upphaflegri útbreiðslu 50-Shades-bókanna því það skiptir vafalaust máli að frumgerðin var skrifuð og birt á netinu sem „fanfiction“ út frá Twilight-bókaflokknum (er til almennilegt íslenskt heiti yfir fanfiction?). Þótt E.L. James sé fjarri því að vera sú fyrsta sem kryddar fanfiction með kynlífi, þvert á móti skrifar hún inn í umfangsmikla hefð þar, mun hún hafa vakið tiltölulega mikla athygli fyrir að skipta skírlífu vampírunum í Twilight út fyrir kynlíf sem þótti krassandi. Svo fór boltinn að rúlla. E.L. James umskrifaði fanfiction-söguna Master of the Universe og til varð 50-Shades-trílógían sem var í fyrstu gefin út sem rafbækur hjá litlu forlagi. Þegar metsölu í rafbókaflokki var náð fóru stærri forlög að bítast um bækurnar og þær komust fljótt einnig á metsölulista prentaðra bóka.
Eins og fleiri var ég semsagt forvitin að sjá um hvað málið snerist og las fyrstu bókina um daginn. Hún kom mér nokkuð á óvart en ekki út af kynlífsþættinum og ekki á jákvæðan hátt. Það var býsna merkilegt að sjá hversu afgerandi keim bókin ber af annarri bókmenntagrein sem hefur einnig verið á jaðrinum, þ.e. þeirri sem oft er kölluð „rauðu ástarsögurnar“. Ef nokkrum kynlífslýsingunum væri sleppt og aðrar styttar svolítið myndi bókin smellpassa inn í einhverja af seríunum sem Ás-útgáfan gefur út.*
Sýnir færslur með efnisorðinu erótík. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu erótík. Sýna allar færslur
7. ágúst 2012
9. nóvember 2011
Veður af graðhesti
Það var algjör tilviljun að ljóða- og ævintýrakverið Kanill eftir Sigríði Jónsdóttur rak á fjörur mínar þetta haustið; ég hefði örugglega aldrei rekist á það ef önnur druslubókadama hefði ekki gaukað því að mér. Þetta er lítil, ferköntuð bók í glansandi bleikri kápu með gylltum stöfum, skemmtilega extravagant hönnun og sannarlega ekki það sem ég hefði almennt búist við af Sæmundi, útgáfufélagi Sunnlenska bókakaffisins! (Myndin hér til hliðar sýnir glansáferðina alls ekki nógu vel.) Sigríður hefur áður gefið út ljóðabókina Einnar báru vatn, sem ég komst að því að er í sömu glansbleiku kápunni, þó með svörtum stöfum – höfundarverk Sigríðar hlýtur að skera sig mjög úr í bókahillum.En bókin heitir sumsé Kanill: ævintýri og örfá ljóð um kynlíf og samanstendur af sjö erótískum ljóðum og einu ævintýri. Ég verð að segja að mér finnst erótíkin bara frekar vel heppnuð, sem er ekki lítill sigur, hún er eitthvað svo vandmeðfarin og verður auðveldlega áreynslukennd og tilgerðarleg. Hér er erótíkin prakkaraleg og opinská og snýst mjög um það hvað það er þrúgandi að leggja hömlur á kynferðið, eins og er auðvitað ekki síst gert í tilfelli kvenna. Mér finnst hin frelsandi erótík konunnar stundum eiga það til verða hálfvæmin – einhver svona Píkusögufílingur – en þessi er alveg laus við það.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
