![]() |
| Fæst orð hafa minnsta ábyrgð |
Sýnir færslur með efnisorðinu rafbækur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu rafbækur. Sýna allar færslur
24. febrúar 2012
„Afsakið eggjasalatsblettina, en ég er ástfangin“*
Fyrir nokkrum dögum birtust hér hugleiðingar Þorgerðar Sigurðardóttur um rafbókavæðingu. Meðal annars nefndi hún að sumum þætti það löstur á rafbókunum að ekki væri hægt að skrifa athugasemdir á spássíurnar á þeim. Út frá þessu fór ég að hugleiða tvennt: Hvort það væri rétt að ekki væri hægt að krota á spássíur rafbóka og ef svo væri, hvort mér þætti það endilega vera löstur.
Áður en ég held áfram finnst mér nauðsynlegt að taka það fram að ég hef (frekar) mikla fordóma út í fólk sem krotar mikið í bækur. Lægstu lífsformin eru auðvitað þeir sem dirfast að krota í bókasafnsbækur. Stundum hef ég fengið lánaðar bækur á söfnum sem hafa reynst ónothæfar vegna þess að einhver bjáninn sem greinilega hefur litið á sig sem snilling hefur fyllt þær af pennaskrifuðum athugasemdum á spássíum og strikað undir heilu efnisgreinarnar með penna. Við slík tækifæri hefur mín sterka andstaða við dauðarefsingar orðið mun veikari. Í það minnsta ætti að setja svona fólk í gapastokk á Austurvelli. Svo veit ég ekki hvort ég fæ það af mér að minnast á þann sið sumra að fylla bækur af rákum eftir alls konar litaða yfirstrikunarpenna. Það er eins og sumir geti ekki lesið eina einustu setningu án þess að lita hana gula, bleika eða fjólubláa. Sé þetta notað til að hjálpa lesblindum að rýna í texta er það auðvitað gott og gilt en ég hef stórar efasemdir um að svona litabókaleikur gagnist öðrum til að öðlast betri skilning á námsefni, eða hvað það nú er.
21. febrúar 2012
Má bjóða þér að blaða aðeins í kyndlinum mínum?
Íslenskir bókaútgefendur, rithöfundar, bóksalar og lesendur fikra sig nú áfram á rafbókamarkaði og lesendur virðast, margir hverjir að minnsta kosti, taka rafbókavæðingunni fagnandi. Rafbókina má kaupa strax, hvar sem maður er staddur í veröldinni og hún ferðast auðveldlega milli landa í víðum skilningi. Væntanlega þarf ekki að bíða endalaust eftir endurprentunum og svo eru rafbækur nokkuð ódýrari en hinar prentuðu. Við þurfum ekki að burðast með þungan pappír á milli staða og rafbækur taka ekkert sýnilegt pláss og það má stilla lesvélar eftir þörfum hvers lesanda. Einnig væri hægt að benda á umhverfissjónarmið í þessu sambandi þó að margir hafi vissulega bent á að gamlar lesvélar muni væntanlega hlaðast upp þegar frá líða stundir og því séu þau ekki endilega ægilega umhverfisvæn en það er önnur saga.3. febrúar 2012
Bókin sem breytti útgáfuheiminum
Rafbókavæðingin og það hvað hún getur þýtt fyrir bókaútgáfu hefur mikið verið rædd undanfarið. Sitt sýnist auðvitað hverjum, sumir fagna rafbókinni á meðan aðrir bölsótast og eru vissir um að hún muni ganga af forlögunum dauðum, Amazon muni erfa heiminn og allt fari til andskotans.
Amanda Hocking er nafn sem hefur verið áberandi í þessari umræðu, því hún hefur orðið einskonar tákn fyrir rafbókavæðinguna og öðruvísi útgáfulandslag.
Amanda Hocking er tuttugu og sjö ára bandarískur rithöfundur sem skrifar yfirnáttúrulega rómansa (eða paranormal romance eins og það heitir upp á ensku). Hún hefur alltaf haft áhuga á bókmenntum og hún byrjaði mjög ung að skrifa. Hún fór fljótlega að leita sér að útgefanda en fékk neitun á neitun ofan. Þegar hún var komin með heilu skúffustæðurnar fullar af bókum og bókaflokkum og var orðin úrkula vonar um að fá útgáfusamning ákvað hún að taka málin í sínar hendur. Hún gaf bækurnar sjálf út á Amazon og verðlagði þær afar ódýrt. Ég held að fyrsta bók í seríu hafi kostað 99 sent og sú næsta 2.99 dollara. Þær seldust ekkert sérstaklega hratt í fyrstu, en Hocking dældi þeim á netið og forvitnir lesendur tóku við sér. Sex mánuðum síðar voru bækurnar hennar orðnar heitasta heitt á Amazon, hún var búin að græða sex þúsund dollara og gat hætt í vinnunni og einbeitt sér að ritstörfum. Og nú skilst mér að hún hafi selt 1,5 milljón bækur og grætt 2,5 milljónir dollara á þeim.
Forleggjarar, sem höfðu ekki sýnt henni áhuga áður, fóru að hafa samband við hana og hún þáði að lokum 2,1 milljóna dollara samning við St. Martins Press. Margir urðu hissa á að hún hefði gengið til liðs við forlag eftir að hafa gengið svona vel sjálfri, en hún sagðist vera orðin dauðþreytt á því að þurfa að gera allt sjálf. Hún kvartaði yfir því að hún ætti erfitt með að finna nógu gott frílansfólk, því bækurnar hennar voru oft morandi í villum, þrátt fyrir að hún hefði borgað fólki fyrir ritstjórn og prófarkalestur. Það fannst henni leiðinlegt, því lesendur ættu betra skilið. Hana langaði líka að bækurnar hennar væru til í bókabúðum og aðgengilegar fólki sem ætti ekki rafbókalesara.
Ég ákvað að tjékka á því hvort eitthvað væri í hana spunnið og keypti mér bókina Switched, fyrstu bókina í Trylle-trílógíunni (á kyndilinn, en ekki hvað), sem nú kostar reyndar 9 dollara en ekki lengur 99 sent, útgefin og yfirfarin af nýja forlaginu hennar og ódýra, upphaflega útgáfan löngu horfin af netinu.
Amanda Hocking er nafn sem hefur verið áberandi í þessari umræðu, því hún hefur orðið einskonar tákn fyrir rafbókavæðinguna og öðruvísi útgáfulandslag.
![]() |
| Amanda Hocking |
Forleggjarar, sem höfðu ekki sýnt henni áhuga áður, fóru að hafa samband við hana og hún þáði að lokum 2,1 milljóna dollara samning við St. Martins Press. Margir urðu hissa á að hún hefði gengið til liðs við forlag eftir að hafa gengið svona vel sjálfri, en hún sagðist vera orðin dauðþreytt á því að þurfa að gera allt sjálf. Hún kvartaði yfir því að hún ætti erfitt með að finna nógu gott frílansfólk, því bækurnar hennar voru oft morandi í villum, þrátt fyrir að hún hefði borgað fólki fyrir ritstjórn og prófarkalestur. Það fannst henni leiðinlegt, því lesendur ættu betra skilið. Hana langaði líka að bækurnar hennar væru til í bókabúðum og aðgengilegar fólki sem ætti ekki rafbókalesara.
Ég ákvað að tjékka á því hvort eitthvað væri í hana spunnið og keypti mér bókina Switched, fyrstu bókina í Trylle-trílógíunni (á kyndilinn, en ekki hvað), sem nú kostar reyndar 9 dollara en ekki lengur 99 sent, útgefin og yfirfarin af nýja forlaginu hennar og ódýra, upphaflega útgáfan löngu horfin af netinu.
19. september 2011
Óyfirstíganleg bókavandræði

Ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að kaupa mér rafbókalesgræju. Fyrir nokkrum árum fannst mér hugmyndin fáránleg en núna er ég að reyna að selja sjálfri mér þá hugmynd að ég þurfi ekki að kaupa mér nýjar bókahillur (sem er til marks um sjálfsblekkingu á háu stigi) ef ég hætti einfaldlega að kaupa bækur í pappírsformi. En þetta er ekki svona einfalt, upp koma ýmis vandamál:
1. Hvað með bækurnar sem fyrir eru í hillunum? Er ekki eitthvað fáránlegt að hætta allt í einu að kaupa pappírsbækur og hafa gömlu bækurnar samt í hillunni? Þá halda gestir að ég hafi hætt að lesa bækur árið 2011 (gisp!). Á maður þá kannski gefa allar bækur nema uppáhaldsbækurnar, hætta einfaldlega að vera með bækur í hillum? Þetta finnst mér óyfirstíganlegt. Fréttir herma að IKEA ætli nú að setja á markað dýpri Billy bókaskápa (já, ég veit, fáránleg hugmynd, þeir eru of djúpir sem stendur) fyrir þá sem ætla ekki að hafa bækur í bókaskápunum, nema þá kannski einstaka menningarhornstein. IKEA býr sig þannig undir rafbókabyltinguna, í framtíðinni verða ekki bækur í bókaskápum, bara eitthvað dót. Hillurnar verða þannig aðalmálið en ekki bækurnar.
2. Ég er svona týpa sem grannskoða bókahillur heima hjá fólki. Fyrir mér eru bækur í hillum nefnilega vitnisburður um eiganda þeirra. Ég veit að þetta er ekkert sérlega gáfuleg árátta, hún býður upp á allskonar sleggjudóma og vitleysu. Ég hef tildæmis mikla fordóma fyrir þeim sem raða bókunum sínum í stafrófsröð eða eru mjög harðir á Dewey kerfinu. Svo segja bækur auðvitað stundum nákvæmlega ekki neitt um eigandann. Fyrir mörgum árum vann ég í bókabúð á Laugaveginum. Þangað kom einu sinni alþekktur nýríkisdrengur sem vildi kaupa bækur sem áttu að passa í nýjar, sérsmíðaðar hillur í piparsveinsíbúðinni hans. Hann mætti með hönnuðinn með sér til að kaupa réttu bækurnar sem áttu fyrst og fremst að líta vel út í hillu en þurftu einnig að endurspegla einhverja tilbúna sjálfsímynd drengsins, ef ég man rétt. Bókasafn þessa drengs endurspeglaði sumsé bara einhverja þvælu. Punkturinn er semsagt þessi. Ef enginn sér bækurnar mínar, hvernig getur fólk þá vitað hversu stórkóstlegan og víðfeðman bókmenntasmekk ég hef? Lætur maður kindelinn ganga í matarboðum eða....?
3. Hér kemur svo alvöru vandamál. Hvernig græju á maður að velja? Er ekki glatað að eiga Kindle af því að maður verður að kaupa bækurnar á amazon? Á ég þá að kaupa ipad? Ef ég kaupi ipad er þá ekki líklegt að ég noti hann bara til að leggja kapal í strætó? Hætti ég þá kannski að lesa af því að það er baklýsing (eða af því að það er ekki baklýsing, hvort er aftur betra?).
Ef einhver á svona græju og getur sagt reynslusögu/r þá er það vel þegið...eða bara fordómasögur...eða aðrar skemmtisögur...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

