Eins og algengt er um bókhneigt fólk stjórnast tilfinningalíf mitt, áhugamál og langanir gjarnan af því sem ég les. Þar er ferðaþorstinn ekki undanskilinn og á síðustu árum hefur góðum bókum tekist að vekja með mér löngun til að ferðast til Ástralíu, sem ég hafði áður fremur leiðinlega mynd af og sá aðallega fyrir mér sólbrennda Breta, sálarlaus úthverfi og verslanaklasa (þökk sé breskum sjónvarpsþáttum, sér í lagi endalausum raunveruleikaþáttum þar sem miðstétta-Bretar í tilvistarkrísu flytja á vit nýs lífs "down under", sem endar yfirleitt með hjónaskilnaði og/eða gjaldþroti). Hér má sumsé lesa um nokkrar af þeim skemmtilegustu Ástralíutengdu bókum sem ég hef lesið á síðustu árum.Fyrsta skal telja English Passengers eftir Matthew Kneale, sem einmitt segir frá upphafsárum vestrænna landnema í Eyjaálfu, nánar tiltekið á eynni Tasmaníu. English Passengers er ein af þessum sérdeilis safaríku bókum; framvindunni er komið til skila með röddum ótal ólíkra persóna og hún spannar langan tíma og gríðarlega stórt sögusvið. Stór hluti sögunnar er frásögn af ferðalagi þeirra séra Geoffrey Wilsons og Dr. Thomas Potters til Tasmaníu, en sérann er í eins konar pílagrímsferð og er þess fullviss að á Tasmaníu sé sjálfan Edensgarð að finna. Í frásögninni fléttast leyndardómar, ráðgátur og svik saman við afar vel útfærðar lýsingar á tíðaranda og staðháttum, auk þess sem skelfilegum örlögum frumbyggja Tasmaníu eru gerð ógleymanleg skil. Sagan er aldrei þung í vöfum; Kneale ber skynbragð á það fáránlega og skoplega þrátt fyrir að ýmislegt í sögunni sé átakanlegt, og þá sérstaklega sá hluti sem snýr að endurminningum Peevays, frumbyggja sem lendir milli tveggja menningarheima. Ég er afskaplega veik fyrir bókum sem hafa marga sögumenn; ef vel er skrifað vekur það upp alls kyns áhugaverðar spurningar um sannleika, trúverðugleika og mótívasjónir þess sem talar. Ég las þessa fyrir nokkrum árum og hún var klárlega ein af fimm bestu bókum sem ég las það árið.