Hin ágæta Druslubókadama Þórdís Gísladóttir situr ekki auðum höndum fyrir jólin – hún þýddi Hringinn og Allt er ást og svo sendi hún frá sér barnabókina Randalín og Mundi sem kom út hjá Bjarti fyrir nokkrum vikum. Fyrir þetta allt hefur hún auðvitað sankað að sér tilnefningum eins og lesa má um hér.
Eins og bækurnar eftir einn af mínum uppáhalds barnabókahöfundum – Anne-Cath. Vestly þá væri hægt að flokka Randalín og Munda sem hversdagsævintýri. Báðir höfundar kunna þá list að gera hversdaginn merkingarbæran. Þótt lygilegir og magnaðir atburðir eigi sér stað í bókinni þá eru þeir einhvern veginn þannig að hvert barn ætti í raun að geta lent í svipuðu fjöri – ef þau eru bara jafn frjó og skemmtileg og Randalín og Mundi. Svo er líka vert að minnast á það er alveg möguleiki á að vaxa og læra án þess að missa fót eða foreldri - maður getur líka þroskast við að kynnast skrítnum nágrönnum og taka strætó!
Sýnir færslur með efnisorðinu fyndni. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu fyndni. Sýna allar færslur
16. desember 2012
1. september 2012
A Walk in the Woods í rútu um Bandaríkin
Á nýlegri rútuferð minni um Bandaríkin langaði mig (eftir skammt af skandinavískum glæpum auðvitað) til að lesa eitthvað um ferðalög í Ameríkunni og leitaði til Bill Bryson sem ég hef lengi ætlað að lesa annað eftir en Shakespeare (hana hef ég lesið þrisvar). (Bryson er góðvinur Druslubloggsins og hefur verið fjallað um hann hér). Fyrir valinu varð A Walk in the Woods sem segir frá (þrauta)göngu höfundar um Appalachia-slóðina sem er um 2000 mílur (heimildum ber ekki saman um nákvæma vegalengd) og liggur um mikilfenglega fjallgarða Bandaríkjanna og á nákvæmlega ekkert sameiginlegt með huggulegu rútuferðalagi mínu annað en landið. Það dró þó ekki úr ánægju við lesturinn og þó að mínar göngur hafi helst verið um aðalgötur bæja og borga (með sólhatt og kælt vatn í kaffhaldaranum á barnakerrunni) þá sá ég raunar bæði The Rockies og The Smokies út um gluggan á rútunni og átti ekki vandræðum með að ímynda mér Bryson sveittan í hlíðum fjallanna.![]() |
| Rocky Mountains séð frá Bozeman Montana en þar kom ég við... |
Bryson hefur ferð sína um þennan fræga götuslóða þegar hann er 44 ára. Jólin áður hafði hann sent línu með öllum jólakortunum og boðið fólki að koma með (hann hryllti við að mæta úlfum, björnum og morðingjum einn á ferð). Einn einasti svaraði kallinu – Stephen Katz, æskuvinur sem hann hafði ekki hitt í 25 ár. Sá reyndist hafa fitnað og ólukkast eitthvað á þessum 25 árum og eftir lýsingar á því hvernig hann mæddist við að ganga upp stigann heima hjá Bryson var erfitt að ímynda sér annað en að hann yrði dragbítur á höfundinum þótt hann væri kannski enginn Ólympíufari sjálfur. Katz reynist vera mikill furðufugl en auðvitað betri en enginn þegar á hólminn (eða fjallið) er komið. Hann tekur gríðarmikið af kleinuhringjum og bollakökum með en hendir síðan helmingnum á leiðinni þegar bakpokinn fer að síga í, hendir dýrmætri vatnsflösku, villist, fer í fýlur, fer á fjörurnar við afmyndaða (og – kemur í ljós – gifta) gengilbeinu og er að sumu leyti það merkilegasta við ferðina. Bryson er reyndar svo brútal stundum í lýsingum á þessum félaga sínum að ég fór alvarlega að velta því fyrir mér hvort hann væri skáldaður, hvort hann hefði svona æpandi mikinn húmor fyrir sjálfum sér - eða hvort hann væri svo lítið menningarlega sinnaður að Bryson treysti því að hann myndi aldrei lesa bókina.
9. nóvember 2011
Langloka um sniðuga karla
Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf (sæ. Hundraåringen som klev ut genom fönstret och försvann) eftir Jonas Jonasson virðist talin söluvænleg bók. Að minnsta kosti er hún ein af þessum kiljum sem eru hafðar til sölu á bensínstöðvum og í apótekum. Framan á kápunni er vitnað í umsagnir frá Skandínavíu þar sem segir „frábærlega skemmtileg saga, kemur sífellt á óvart“ og „Villt og galin, óstjórnlega fyndin“. Aftan á kápunni segir að bókin hafi óvænt orðið „ein helsta metsölubók síðari ára í Svíþjóð og fer nú sigurför um önnur lönd“. Þar að auki hefur bókin hlotið mjög lofsamlega dóma í Kiljunni og víðar, og er þá jafnan haft á orði hve fyndin hún sé. Væntingarnar til þessarar bókar mega því vera miklar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


