Sýnir færslur með efnisorðinu Helga Ferdinands. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Helga Ferdinands. Sýna allar færslur

13. september 2011

„I‘m not that guy“

Ég var kynnt fyrir Horacio Castellanos Moya á bókaballinu. Um leið og ég tók í höndina á höfundi Fásinnu þá leit hann í augu mér og sagði eins og í trúnaði: „I‘m not that guy“. Þetta var ekki bara hver önnur setning, ég skildi strax um hvern hann var að tala.

Moya er landflótta rithöfundur frá El Salvador, samt fæddur í Hondúras og segist vera landlaus. Heimsborgari sem lítur ávallt yfir öxlina heim til Rómönsku-Ameríku í skáldskap sínum. Hann er af nýrri kynslóð rithöfunda, laus undan hefð töfraraunsæis Allende og Marquez og fjallar umbúðalaust um blóðuga fortíð þessarar stríðshrjáðu álfu. Skáldsaga hans Fásinna (Insensatez) er listavel þýdd af Hermanni Stefánssyni sem kemst snöfurmannlega frá stíl Moya sem einkennist af mikilli punktafæð og setningalengd.

Fásinna hverfist um rithöfundarlufsu sem fenginn er af kaþólsku kirkjunni í það verkefni að prófarkalesa ellefu hundruð síðna skýrslu um tíu ára gamalt þjóðarmorð hersins á frumbyggjum í ónefndu ríki í Mið-Ameríku. Ýmist drukkinn eða heltekinn kynórum leggst hann yfir vitnisburði af yfirgengilegum ofbeldisverkum.

„Ég er ekki andlega heill, hljóðaði setningin sem ég undirstrikaði með gula merkipennanum, setningin sem ég gekk svo langt að hreinrita í mína eigin persónulegu minnisbók, því þetta var ekki bara hver önnur setning, hvað þá afmarkað tilvik, öðru nær ...“ (7)

Rithöfundurinn heillast af ljóðrænni orðræðu frumbyggjanna en um leið þrengir blóðugt umfjöllunarefnið sér innundir vitundina uns taugaveiklun og vænisýki heltekur hann. Hann fer að sjá morðingja í hverju skúmaskoti og sannfærist um að hershöfðingjarnir sem stýra landinu vilji hann feigan.

30. ágúst 2011

Murakami og kettirnir

Ensk þýðing á nýjustu bók Haruki Murakami mun koma út í október, aðdáendum japanska rithöfundarins til mikillar gleði. Í nýjasta hefti New Yorker eru birtar heilar níu blaðsíður upp úr bókinni, sem nefnist 1Q84, og er hægt að lesa þær hér á vefsíðu tímaritsins. 1Q84 kom út í Japan 2009-10 í þremur bindum, en mun víst vera gefin út í 1.000 blaðsíðna doðranti vestanhafs, en í tveim bindum í Bretlandi. Bókin varð alger metsölubók í Japan og seldist í einni milljón eintaka á innan við mánuði. Glöggir lesendur Druslubókabloggsins hafa að sjálfsögðu kveikt á því að nafn bókarinnar er vísun í 1984, bók George Orwells, en talan níu hljómar víst eins og stafurinn Q á japönsku. Þetta er ekki tilviljun því frásögnin mun vera óður til bókar Orwells.

Bókarbrotið í New Yorker er birt undir fyrirsögninni „Town of Cats“ og í því kynnumst við annarri af aðalsöguhetjum 1Q84, manni að nafni Tengo, þegar hann ákveður skyndilega að heimsækja föður sinn er býr á heimili fyrir heilabilaða. Feðgarnir eru ekki nánir og Tengo hugsar til þess á meðan hann bíður eftir lestinni: „They were two separate human beings who had come from—and were heading toward—entirely different places. By chance, they had spent some years of life together—that was all. It was a shame that it had come to that, but there was absolutely nothing that Tengo could do about it.“

Þetta væri ekki Murakami ef ekki væri ofin súrrealísk dæmisaga inn í aðalfrásögnina af feðgunum. Á þessum níu blaðsíðum er það smásagan Town of Cats sem Tengo les í lestinni á leiðinni í heimsóknina. Maður þarf ekki að vera mikill túlkunarfræðingur til að nema vísanaþyngsli sögunnar í samskiptum Tengo og pabbans heilabilaða:

“Hey, do you smell something human?” one of the cats says. “Now that you mention it, I thought there was a funny smell the past few days,” another chimes in, twitching his nose. “Me, too,” yet another cat says. “That’s weird. There shouldn’t be any humans here,” someone adds. “No, of course not. There’s no way a human could get into this town of cats.” “But that smell is definitely here.”

Þeir sem hafa lesið 1Q84 vilja meina að hún sé í kunnuglegum Murakami stíl þar sem súrrealískur hliðarveruleiki og hversdagsleg rauntilvist persónanna er í stöðugu flökti inn og út af sögusviðinu. Bókinni var ekki síður vel tekið af gagnrýnendum í Japan og var álit manna að hér væri eitt höfuðverk skáldsins á ferðinni.

1Q84 verður komin í búðir í lok október sem gefur manni nægan tíma til að hita upp með lestri á uppáhalds Murakami bókunum, Hard-Boiled Wonderland and the End of the World, A Wild Sheep Chase og The Wind-Up Bird Chronicle.

Helga Ferdinands

16. ágúst 2011

Barmmikil Bennet og helmassaður Darcy

Í hittifyrra gaf bandaríska bókaforlagið Marvel út myndabókaútgáfu af Hroka og hleypidómum eftir Jane Austen í nokkrum heftum. Nancy Butler stytti frumgerðina fyrir myndskreytingu, en hún hefur áður aðallega skrifað lífstykkjaástarsögur og ekki komið nærri myndabókaheiminum áður. Hugo Pertus, sem myndskreytir Hroka og hleypidóma, er einn af hústeiknurum Marvel en útgáfan er þekkt fyrir steríótýpískar súperhetjuteiknimyndasögur. Þetta leynir sér ekki í þrýstnu vaxtalagi Bennet-systra og vöðvamassa Darcy. Að óséðu lofa þessir höfundar eiginlega ekki góðu en það er eitthvað sem virkar alveg í þessari útgáfu og er skemmtilegt. Sagan er náttúrulega frábær af hálfu Austen, og Butler kemst ágætlega frá því að koma henni fyrir í þessum knappa miðli. Hún reynir að halda sig við texta Austen, persónusköpun hennar og hjarta sögunnar. Auðvitað vantar margt og sums staðar hefur þurft að semja upp á nýtt til að stytta frásögnina, en að mestu gengur þetta upp. Enda voru teiknimyndasögurnar rifnar út, jafnt af aðdáendum Jane Austen og ungum lesendum. Fór salan fram úr björtustu vonum Marvel og sat Hroki og hleypidómar í 13 vikur á New York Times Graphic Novel Bestseller list.




Marvel-útgáfan var því komin á Austen-bragðið og í fyrra birtust fimm blöð af Sense and Sensibility (sem ég get ekki munað hvað er kölluð í íslenskri þýðingu og Gegnir er lokaður) og er sami höfundur Nancy Butler aftur að verki. Það eru mjög ólíkir teiknarar sem myndskreyta sögurnar og hafa þær því ólíkt yfirbragð. Sonny Liew var fenginn til að myndskreyta Sense and Sensibility og fer mjúkum höndum um söguna. Hann er margverðlaunaður myndskreytir sem hefur meðal annars fengið Eisner-verðlaunin. Myndirnar eru fínlegar en ekki of sætar, vinna vel með frásögninni og ná að lyfta því mikla textamagni sem er á síðunum. Sense og Sensibility hefur aldrei verið nein uppáhaldsbók hjá mér (Persuasion er mín bók), kannski út af öllum þessum feiknalöngu útskýringum á því hvað gerðist og af hverju sem Austen treður út um alla frásögnina. Í þessari útgáfu sleppur maður undan þeim að mestu og lesendanum er bara leyft að daga sínar ályktanir óstuddur. Nú verð ég kannski skömmuð en mér finnst það til bóta.


Butler virðist hafa fundið sig hjá Marvel því nú í júlí kom fyrsta heftið af Emmu út og er ekkert lát á vinsældunum Austen-teiknimyndasagnanna. Ef þú ert ekki vön að lesa teiknimyndasögur þá eru þessar útgáfur á Austen ágætis leið til að kynnast þeim.

Helga Ferdinands