Á síðustu árum hefur holskefla af handavinnubókum skollið á landsmönnum – bæði íslenskar og þýddar. Fróðir menn/konur telja þessa miklu handavinnuástríðu vera eina birtingarmynd kreppunnar – nú eru allir í sjálfsþurftarbúskapnum, búa til frá grunni osfrv. Það er kannski eitthvað til í því en garn kostar reyndar handlegg og fótlegg svo nema þú prjónir allt úr plötulopa (sem ég geri mikið af – hræódýr og fallegur) þá ertu kannski ekki að spara neinar fúglur með prjónaskapnum. En alla vega, þessar handavinnubækur hafa vægast sagt verið afar misjafnar af gæðum og ég ljóstra því hér með upp að þetta hefur valdið talsverðum æsingi í hópi Druslubókadama. Færum handavinnukonum innan hópsins hefur ofboðið sumt það sem á boðstólnum er svo ekki sé meira sagt.
Sýnir færslur með efnisorðinu handavinnubækur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu handavinnubækur. Sýna allar færslur
21. ágúst 2012
handavinna í kreppunni
Á síðustu árum hefur holskefla af handavinnubókum skollið á landsmönnum – bæði íslenskar og þýddar. Fróðir menn/konur telja þessa miklu handavinnuástríðu vera eina birtingarmynd kreppunnar – nú eru allir í sjálfsþurftarbúskapnum, búa til frá grunni osfrv. Það er kannski eitthvað til í því en garn kostar reyndar handlegg og fótlegg svo nema þú prjónir allt úr plötulopa (sem ég geri mikið af – hræódýr og fallegur) þá ertu kannski ekki að spara neinar fúglur með prjónaskapnum. En alla vega, þessar handavinnubækur hafa vægast sagt verið afar misjafnar af gæðum og ég ljóstra því hér með upp að þetta hefur valdið talsverðum æsingi í hópi Druslubókadama. Færum handavinnukonum innan hópsins hefur ofboðið sumt það sem á boðstólnum er svo ekki sé meira sagt.8. mars 2012
Margt á prjónunum
Á tímabili safnaði ég prjónabókum. Þar á ég fyrst og fremst við bækur með prjónauppskriftum en þó ekki bara. Oft er prjónabók helguð tiltekinni aðferð, tækni eða mynsturgerð, hugmyndum tiltekins prjónahönnuðar eða prjónuðum plöggum af einhverju tagi og oft inniheldur hún heilmikinn sögulegan fróðleik. Mér telst svo til að ég eigi tæplega fimmtíu prjónabækur, sem eru nú kannski engin ósköp, en mér finnst það orðið nóg. Alla vega er ég nánast alveg hætt að kaupa slíkar bækur því mér finnst ég orðið eiga allt sem ég þarf í þeim efnum. Ég á nokkuð gott safn af flestum þeim uppskriftum sem ég þarf eða fræðslu um aðferðir til að prjóna allt það sem mig langar til að prjóna og það sem upp á vantar er auðvelt að nálgast á netinu, ekki síst eftir tilkomu prjónafeisbúkkarinnar Ravelry. Líklega gæti ég freistast til að kaupa enn eina prjónabókina ef hún innihéldi eitthvað mjög frumlegt eða nýstárlegt, eða væri með alveg sérdeilis fallegum myndum, en ég ber mig ekki eftir því lengur.
26. september 2011
Saumavélasögur

Fyrir nokkrum árum fékk ég saumavél í afmælisgjöf. Miðað við að ég hafði óskað mér saumavélar látlaust í mörg ár hefði ég átt að vera himinsæl með gjöfina. En eitthvað fór lítið fyrir sælunni. Meira áberandi var svekkelsi, uppgjöf, jafnvel ótti. Ástæðan fyrir þessu misræmi var auðvitað sú að þrátt fyrir að mig dreymdi um að vera týpan sem gæti vippað upp pilsi korter í partý, breytt smart vintage fötum þannig að þau yrðu enn smartari og saumað litla stelpukjóla úr seventís koddaverum þá var ég einmitt ekki sú týpa. Ég var þvert á móti týpan sem hafði síðast sest við saumavél í 12 ára bekk til að gera við gat á buxum áður en ég færi í þeim í skíðaferð. Ég meina, hversu flókið gat þetta verið, maður bara saumaði eitt „strik“ og málið væri leyst, ræt? Klukkutíma og þremur brotnum nálum síðar kom í ljós að ég hafði ekki bara saumað gatið saman heldur alla buxnaskálmina í kuðl. Og ekki bara það. Einhvern tímann í hita leiksins höfðu flugbeittar tennur saumavélarinnar líka nælt í nærliggjandi koddaver og það hafði saumast fast við skálmarkuðlið. Ég mætti grátandi í skíðaferðina og í buxum af litla bróður mínum. Og þar sem ég stóð fyrir framan nýju saumavélina var ég allt í einu miklu meira þessi týpa en sú í draumum mínum. Það var ekki fyrr en sirka tveimur vikum eftir afmælið sem það hvarflaði fyrst að mér að kannski hefðu verið skrifaðar bækur fyrir fólk eins og mig, bækur sem kenndu byrjendum að sauma einfalt en samt ekki hræðilega ljótt dót. Ég lagðist í rannsóknarvinnu á netinu og nýr heimur opnaðist.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
