Nú er jólabókaflóðið skollið á og mig svimar af hamingju yfir öllum yndislestrinum sem fram undan er. En eitthvað verður kona að hafa fyrir stafni þau kvöld sem hún dettur í sjónvarpsgláp, þær stundir sem hún situr barnlaus í strætó, meðan hún hlustar á hljóðbækur og já – mér detta svo sem ekki í hug fleiri staðir og stundir þar sem ég gæti með góðu móti prjónað – en það geta vonandi aðrir - til dæmis má prjóna jólagjafir! Fyrir tæpu ári síðan áskotnaðist mér dásamleg dönsk bók sem heitir Kærlighed paa pinde – hér er engin erótík í spilunum heldur er þetta bók um prjónaskap. Það sem meira er – þetta er bók eftir einn uppáhalds prjónahönnuðinn minn – Lene Holme Samsöe (hér eftir nefnd LHS).
Sýnir færslur með efnisorðinu prjónabækur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu prjónabækur. Sýna allar færslur
30. október 2018
Prjónað meðfram jólabókaflóðinu
Nú er jólabókaflóðið skollið á og mig svimar af hamingju yfir öllum yndislestrinum sem fram undan er. En eitthvað verður kona að hafa fyrir stafni þau kvöld sem hún dettur í sjónvarpsgláp, þær stundir sem hún situr barnlaus í strætó, meðan hún hlustar á hljóðbækur og já – mér detta svo sem ekki í hug fleiri staðir og stundir þar sem ég gæti með góðu móti prjónað – en það geta vonandi aðrir - til dæmis má prjóna jólagjafir! Fyrir tæpu ári síðan áskotnaðist mér dásamleg dönsk bók sem heitir Kærlighed paa pinde – hér er engin erótík í spilunum heldur er þetta bók um prjónaskap. Það sem meira er – þetta er bók eftir einn uppáhalds prjónahönnuðinn minn – Lene Holme Samsöe (hér eftir nefnd LHS). 29. október 2013
Arne, Carlos og Maríanna prjóna litríkar lykkjur úr garðinum
Því miður er ég engin galdrakona í höndunum en hef samt mjög gaman af hannyrðum og blaða oft í bókum um slík efni mér til skemmtunar (að eignast barn og vera heima dottandi yfir sjónvarpinu öll kvöld hefur ekki dregið úr áhuga mínum). En það er misjafn sauður í mörgu fé (ullartengd orðatiltæki eiga vel við hér þykir mér) og slíkar bækur misvel heppnaðar. Um daginn rak á fjörur mínar Litríkar lykkjur úr garðinum eftir Arne og Carlos sem er nokkuð forvitnileg þó að mér sýnist hún kannski ekki endilega vera sérsniðin að mínum þörfum. Hannyrðafólk man jafnvel eftir Arne og Carlos en þeir eru heilarnir á bak við bókina Jólakúlur Arne og Carlos sem kom út fyrir síðustu jól.Litríkar lykkjur úr garðinum er ansi lagleg að öllu leyti – hún er stór og mikið af fallegum myndum og litadýrðin gríðarleg. Hugmyndin að baki bókinni er skemmtileg – ef nokkuð sértæk. Þeir Arne og Carlos sækja innblástur í garðinn sinn sem er byggður á yfirgefinni brautarstöð í norsku fjöllunum. Það þarf því kannski ekki að undra að blóm, fiðrildi, blómálfar og slíkt koma víða við sögu. Yfirskriftin er: Heklað, prjónað og saumað út að sumarlagi (svo ég ætti kannski ekki að vera að lesa þessa bók þegar langt er liðið á október). Myndirnar eru eins og áður sagði margar, litríkar og sérlega blómlegar og þær eru ekki síður af garðinum, veröndinni og huggulegum húsbúnaði þeirra félaga – þær myndu sóma sér vel í hvers kyns „lífsstíls“ bókum og sumar æpa hreinlega á að vera instagramaðar.
Þarna má finna uppskriftir að ýmsu sniðugu og hagkvæmu eins og hitaplöttum, pottaleppum, stólsessum og tehettum – en ansi stór hluti prjónauppskriftanna eru eins konar blómálfar sem þeir hafa sérhæft sig í að prjóna – og föt á þá ... og þar verð ég að segja að leiðir okkar Arne og Carlosar skilja ... en þetta er að sjálfsögðu smekksatriði og ef prjónaðir blómálfar höfða til manns, þá er þetta stórkostleg bók!
21. ágúst 2012
handavinna í kreppunni
Á síðustu árum hefur holskefla af handavinnubókum skollið á landsmönnum – bæði íslenskar og þýddar. Fróðir menn/konur telja þessa miklu handavinnuástríðu vera eina birtingarmynd kreppunnar – nú eru allir í sjálfsþurftarbúskapnum, búa til frá grunni osfrv. Það er kannski eitthvað til í því en garn kostar reyndar handlegg og fótlegg svo nema þú prjónir allt úr plötulopa (sem ég geri mikið af – hræódýr og fallegur) þá ertu kannski ekki að spara neinar fúglur með prjónaskapnum. En alla vega, þessar handavinnubækur hafa vægast sagt verið afar misjafnar af gæðum og ég ljóstra því hér með upp að þetta hefur valdið talsverðum æsingi í hópi Druslubókadama. Færum handavinnukonum innan hópsins hefur ofboðið sumt það sem á boðstólnum er svo ekki sé meira sagt.20. apríl 2012
Prjónles
Prjónabækur geta verið af ýmsu tagi eins og fram kom í pistli Eyju um efnið fyrir nokkru. Ég á ekki eins margar prjónabækur og hún – a.m.k. ekki ennþá – en þeim fjölgar óðum og við lesturinn á færslunni rifjaðist upp að ég hafði lengi ætlað að segja lesendum druslubókabloggsins frá bút úr einni þeirra. Sú er eftir Elizabeth Zimmermann (sem var mikið prjónagúrú og er í raun enn þótt hún hafi dáið fyrir þrettán árum) og heitir Knitter‘s Almanac. Projects for Each Month of the Year. Eins og heitið gefur til kynna er bókinni skipt í tólf kafla og hver þeirra hverfist um eitthvað sem Zimmermann telur heppilegt að prjóna á viðkomandi árstíma. Í kaflalok er hefðbundin prjónauppskrift en megnið af hverjum kafla felst í því að Zimmermann „talar“ lesandann gegnum verkefnið með ýmiss konar útúrdúrum, stundum um prjón almennt en líka um daginn og veginn, lífið og tilveruna.
Í mars-kaflanum eru nokkrar línur sem hljóta að höfða sérstaklega til áhugafólks um lestur:
„Some may gasp and stretch their eyes, but knitting and reading at the same time is just a matter of practice. Of course you must love knitting and you must enjoy reading; if you don‘t love them equally, one at a time is sufficient.“
12. mars 2012
Staður og stund
Ég fór í miklum sparnaðargír á nýafstaðinn bókamarkað í Perlunni og keypti bara tvær bækur, báðar hræódýrar. Þá sem er til umfjöllunar hér fékk ég á 160 krónur. Hún heitir Amazon og er eftir Barböru G. Walker, gefin út í íslenskri þýðingu Eddu R.H. Waage hjá bókaútgáfunni Ísfólkinu 1993. Bókin er í svona sjoppukiljubandi en það var eitthvað við hana sem vakti forvitni mína þegar ég rak augun í hana. Kannski var það nafn höfundarins sem mér fannst hljóma kunnuglega. Þegar ég las aftan á hana virtist mér hún að minnsta kosti nógu áhugaverð til að fjárfesta í henni og lesa. Þegar heim var komið fór ég að grennslast betur fyrir um höfundinn og fékk grun minn staðfestan: Barbara G. Walker er þekkt nafn úr prjónabókaheiminum, ekki síst fyrir að hafa safnað sérstaklega hinum ýmsu mynstrum og gefið út á bókum. Þrátt fyrir prjónabókasafn mitt á ég ekkert af prjónabókunum hennar en bækurnar hennar ber oft á góma í þaraðlútandi kreðsum. Við þessa nánari athugun mína komst ég að því að Walker hefur ekki einskorðað sig við skrif um prjónaskap heldur hafa femínismi, gyðjutrú, umfjöllun um ýmiss konar mystík og gagnrýni á kristna trú verið henni hugleikin líka. Þótt hún hafi skrifað um gyðjutrú sem einhvers konar femíníska vitundarvakningu virðist hún þó ekki aðhyllast slíkt sjálf heldur hefur hún verið gallharður trúleysingi. Og hún hefur skrifað um hluti eins og alls konar steintegundir og symbólisma þeim tengdan en leggur í þeim skrifum (eftir því sem sagt er, ég hef ekki lesið þetta sjálf) áherslu á að í rauninni sé ekkert yfirnáttúrulegt við steina.
8. mars 2012
Margt á prjónunum
Á tímabili safnaði ég prjónabókum. Þar á ég fyrst og fremst við bækur með prjónauppskriftum en þó ekki bara. Oft er prjónabók helguð tiltekinni aðferð, tækni eða mynsturgerð, hugmyndum tiltekins prjónahönnuðar eða prjónuðum plöggum af einhverju tagi og oft inniheldur hún heilmikinn sögulegan fróðleik. Mér telst svo til að ég eigi tæplega fimmtíu prjónabækur, sem eru nú kannski engin ósköp, en mér finnst það orðið nóg. Alla vega er ég nánast alveg hætt að kaupa slíkar bækur því mér finnst ég orðið eiga allt sem ég þarf í þeim efnum. Ég á nokkuð gott safn af flestum þeim uppskriftum sem ég þarf eða fræðslu um aðferðir til að prjóna allt það sem mig langar til að prjóna og það sem upp á vantar er auðvelt að nálgast á netinu, ekki síst eftir tilkomu prjónafeisbúkkarinnar Ravelry. Líklega gæti ég freistast til að kaupa enn eina prjónabókina ef hún innihéldi eitthvað mjög frumlegt eða nýstárlegt, eða væri með alveg sérdeilis fallegum myndum, en ég ber mig ekki eftir því lengur.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

