Á ferðalagi okkar um Íberíuskagann höfum við Guðrún Elsa og Kristín Svava lagt okkur fram um að heimsækja bækur, hvort sem er í bókabúðum eða á bókasöfnum. Eitt þeirra fjölmörgu bókasafna sem við höfum heimsótt, og án efa það glæsilegasta, er gamla háskólabókasafnið í Coimbra. Það er í barokkstíl, byggt á 18. öld, og kennt við João konung fimmta. Það mátti ekki taka myndir inni á safninu en við tókum tvær myndir úti fyrir og stálum hinum af netinu.
|
Framhlið bókasafnsins. |
|
Húsagarður háskólans í Coimbra. Aðalbyggingin hýsir
lögfræðideild skólans. |
|
|
|
|
|
Á safninu er að finna um 250.000 skruddur. Miðað við þá kili sem við náðum að lesa á er efni bókanna ekkert sérlega spennandi, aðallega af trúarlegum toga og á latínu. Þeir voru til dæmis ekki með neitt eintak af
The Secret World of a Shopaholic, og heldur ekki neitt eftir
Pessoa. Sennilega hafa þeir ekki bætt neinu við síðan á 18. öld.
|
Smá barokk í gangi. |
Eins og öll almennileg bókasöfn var háskólabókasafnið í Coimbra líka með sitt eigið fangelsi - Akademíska fangelsið, sem var staðsett í kjallara safnsins. Væri ekki hægt að koma upp slíkum fangaklefum fyrir þá sem trassa skil á íslenskum bókasöfnum?
|
Annar fangaklefanna tveggja. |
Því skal reyndar haldið til haga að fangelsið tilheyrði ekki bókasafninu strangt til tekið heldur háskólanum sjálfum, sem hafði frá fornri tíð dómsvald yfir nemendum sínum í ákveðnum málum og gátu dæmt þá til fangelsisvistar, til dæmis fyrir óspektir.
1 ummæli:
Mikið svakalega er þetta glæsilegt bókasafn. Frá tímum þar sem fagurfræði í byggingarlist hafði enn ekki úrkynjast...
Skrifa ummæli