Jæja, einsog ég sagði ykkur frá í
síðustu færslu sem ég skrifaði hér, þá er ég stödd í leiguíbúð í Frakklandi, nánar tiltekið á Avenue Michel Croz, nr. 255 í litlum bæ sem heitir Chamonix. Bærinn stendur við rætur Mont Blanc, og hér hef ég verið í góðu yfirlæti í tvær vikur og sötrað bjór og borðað osta-fondue á meðan nokkrir í fjölskyldunni skelltu sér á toppinn.
Íbúðin er vel búin, hér er t.d. arinn, þvottavél, uppþvottavél, dvd-spilari og Playstation, og ansi veglegt úrval af bæði dvd-myndum og bókum. (Ég hefði s.s. getað sparað mér stressið kvöldið fyrir flug að hlaða kyndilinn fullan.)
Það eru svo margar bækur í hillunum að ég nenni ekki að telja þær upp, heldur ákvað ég að láta myndirnar tala. (Ég er líka í sumarfríi og alltof bissí við að gera ekki neitt til þess að geta splæst í langar bloggfærslur.)
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEj5noUO8yr6LrZjPT89ANJs0jC05rv1VhZcKjXsqX4kUZE9RPHleXIGlRA2cMsTbttSWRYZYRdO-Dinv04vgqRxKe2hjoAjyKo0kNtsvZOxYhjg1J05zfRyuElKMaEoeK80CjK1ypOfjmQU/s400/B%25C3%25A6kur4.jpg)
Aðal bókahillan.
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEiHKW9f_1S3EfGE35FrqSH4C0LfokwByJQQ8QIW6YToUc1_C7tffB6eThBXIGJUS0rJSphJsZB7S3eYGiwskeG2Xh6W5cV-Da3JIL-cz0t7YFmgzTLhc5VZCCeyICoBOhTRTodXytw3Ny4O/s400/B%25C3%25A6kur2.jpg)
Súmmað inn á helminginn.
Súmmað inn á hinn helminginn.
Dvd- og bókahilla.
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEiZ3ethF7fbEvgUKSpIaimWv4eK5eOepB-9lgK8zCoDwEWbG5UbrdRMZsVBlzeLBhe6V9YInYW59IUkezxJuO4V-kG27uAsWnQa8Gwra2CmHhU7i33PLaNoFyzJ1sFZ9GzLz-F0CTpcUPuU/s400/B%25C3%25A6kur5.jpg)
Súmmað inn á bækurnar.
Eins og við var að búast eru þetta mestmegnis spennusögur- og krimmar á ensku. Og ég er svo mikil Harry Potter grúppía að það gladdi mig mikið að finna heilar tvær bækur um Harry.
![](https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEgA-qO2DHpFK-ZcQQJIoct2CKF4lIRLaaNt32K-LCSO8wy3-vtqdbvHtO1fVyX2O8A9pKim7RmAZxP6rF9ciUXwgkHDZr0fTeAV2whECR2e72VoF3-7Ywd9TFArGQe-WasnbZtG6BukTBku/s320/Hildur-2011-08-21.jpg)
Og afþví ég veit ekki hvernig ég á að enda þessa bloggfærslu þá slaufa ég henni bara með mynd af mér sjálfri með Mont Blanc í baksýn. En ekki láta útivistarbakpokann blekkja ykkur. Það var ekkert nema varasalvinn minn og veski í honum og ég labbaði ekki neitt, heldur tók kláf og annan kláf og síðan lyftu uppí fjallið.
Svo fór ég og fékk mér bjór.
3 ummæli:
Læk á þessa mynd af þér.
Asimov! Næs.
Og Douglas Adams!
Skrifa ummæli